18.6.2007 kl. 19:12
Rosadrýli
Hvað eru rosadrýli? Hvað er rosi? Á Suðurlandi er mikil og langvinn rigningartíð að sumri kölluð rosi. Mjög votviðrasamt sumar er kallað rosasumar. Rosadrýli eru litlar heyhrúgur, minni en heysátur sem hróflað var upp á túnunum í rosatíð í þeim tilgangi að verja heyið fyrir mestu rigningunni. Getur verið að þetta orð sem og þessi heyverkunaraðferð sé jafnvel óþekkt í öðrum landsfjórðungum?
Athugasemdir
Eiríkur Harðarson
19.6.2007 kl. 00:59
Þetta er eitthvað sem var liðið undir lok þegar ég var í sveit sem gutti uppi í hrunamannahreppi, Þó segir hugurinn mér að þessi aðferð sé notuð að litlu leyti en þann dag í dag. Rekur minni til að hafa séð svona heyhrúgur vestur á Snæfellsnesi fyrir tveimur árum síðan á túni við eitthvert kotbýli. Reyndar var breidd yfir þær svona kollhúfa, svipuð plastpoka.
Jón Valur Jensson
28.6.2007 kl. 01:04
Maður er bara kominn með töðulyktina í nasirnar af þessu tali ykkar!
Eitthvað rámar mig í svona skyndibjörgunaraðgerðir, en man ekki úr hvaða sveitinni það var, undir Eyjafjöllum, í Flóanum eða í Þverárhlíð í Borgarfirði ...