30.12.2012 kl. 10:35

Skotvopnalöggjöfina þarf að herða til muna

Mikil umræða hefur átt sér stað um skotvopnalöggjöfina í kjölfar skelfilegra atvika sem orðið hafa erlendis. Í umræðunni hér heima hafa sumir farið mikinn við að gagnrýna ástandið Vestanhafs en hvernig er staðan í raun og veru hérlendis? Innanríkisráðherra hefur látið hafa eftir sér að málið sé í skoðun og líklega er nýtt frumvarp í smíðum ef marka má fréttir en gengur það nógu langt? Nýlegt atvik þar sem strokufangi komst auðveldlega yfir hættulegan riffil sem geymdur var í sumarbústað sýnir svo ekki verður um villst að hér þarf miklu að breyta. Fleiri dæmi væri hægt að nefna í þessu sambandi. 

Skylda þyrfti eigendur skotvopna til að geyma vopn sín í byssuskáp. Þeir gætu sem best átt þessa skápa saman til að komast hjá miklum útgjöldum og hugsanlega fengið að vista þá annars staðar en á heimilum sínum. Markmiðið væri að öll skotvopn væru í læstum byssuskápum og skotfærin í öðrum jafn öruggum læstum hirslum. Að því búnu þyrfti að koma á reglulegu eftirliti með því að farið væri eftir reglum en sem stendur er ekkert slíkt eftirlit. Það ætti þó enginn að velkjast í vafa að slíkt eftirlit á fullan rétt á sér eins og t.d. bifreiðaeftirlit eða heilbrigðiseftirlit. Þetta eftirlit þyrfti að lögbinda. Þeir sem ekki færu eftir reglunum myndu missa byssuleyfið og yrðu að skila inn sínum vopnum strax við fyrsta brot. 

Samhliða þessu þyrfti að auka umræðu um ofbeldi í afþreyingariðnaði svo sem kvikmyndum og tölvuleikjum og fara fram á að áhrif þessa efnis á samfélagið og neytendur verði rannsakað. Að baki efnisins standa öflugir aðilar sem hagnast að líkindum verulega á því að sýna gróft ofbeldi. Þetta er iðnaður og að baki iðnaðarins er mikið fjármagn. Þessu þarf almenningur að gera sér grein fyrir og vera vakandi gagnvart.

Athugasemdir

Óskráður

30.12.2012 kl. 21:28

Er ekki málið að íslendingar hafa ekkert með byssuleyfi að gera? Er ekki nóg að sérsveitir lögreglu hafi einar leyfi til að fara með skotvopn? Þetta veiðimoment er orðið algerlega úrelt. Við þurfum engin dýr að drepa.

Ragnar Geir Brynjólfsson

30.12.2012 kl. 21:36

Veiðimannasamtökin hafa staðið vörð um sína hagsmuni og munu gera það áfram. Ég læt þeim það eftir.

En það er fleira sem hangir á spýtunni E. Það er ekki langur tími síðan bóndi felldi bjarndýr á Norð-Austurlandi. Hann hafði byssuna með sér á fjárhúsin. Minkur, tófa og vargfugl væru einnig erfið viðureignar ef ekki mætti skjóta á varginn af byssu, t.d. af þeim sem stunda ræktun á sauðfé eða æðardúni svo tekið sé dæmi. Þar eru ríkir hagsmunir í húfi.

Óskráður

30.12.2012 kl. 22:37

Nú vill svo til Ragnar að skotvopnaeigendur eru skyldugir að vista sín skotvopn í hirslum samkvæmt reglum yfirvalda. Að vísu, eins og þú bendir réttilega á, þá þarf ekki staðlaðan byssuskáp samkvæmt reglugerð fyrr en við kaup á þriðja vopni. Eðlilega ætti að setja mörkin við fyrstu byssu fyrst krafan um staðlaðan skáp er til staðar yfirhöfuð. Eftirlitsskyldan er yfirvalda og þau geta krafist þess að fá að koma í heimsókn hvenær sem er til að skoða aðbúnað.

Þá vaknar spurning sem kannski virðist furðuleg: Til hvers að fela eða setja skotvopn í dýra, staðlaða skápa yfirhöfuð ? Ef litið er framhjá þeim eðlilega hlut að koma skotvopnum þannig fyrir að börn eigi ekki aðgang að þeim, þá er hreint ekki augljóst hverju þetta þjónar í raun og veru.

Rannsóknir m.a. frá veiðimanna og byssueigendalandinu Svíþjóð sýna til dæmis að hertar reglur hvað varðveislu skotvopna varðar, skipta engu máli þegar tengsl við afbrot eru skoðuð. Að auki sýna Þær að afbrot framin með veiðivopnum eru næsta fátíð, eiginlega varla til í lögregluskrám. 

Ætli varmenni sér að fremja voðaverk með skotvopni, þá finnur viðkomandi sér skotvopn við hæfi eftir einhverjum leiðum. Þó við myndum banna skotvopnaeign í landinu þá myndu viðkomandi varmenni samt útvega sér skotvopn til voðaverka ef vilji stæði til.

Miklu nær væri að yfirvöld tækju sér tak og héldu alvöru námskeið í líkingu við þau sem haldin eru í Noregi, Svíþjóð og Danmörku og siktuðu þannig frá þá sem ekki ættu að fá að eignast skotvopn. Varmennin munu alltaf vera til staðar og munu alltaf útvega sér skotvopn hvort sem mínar byssur og annarra eru læstar inni eða ekki, nú eða eru ekki til yfir höfuð.

Annars er gleðilegt að lesa svona broslegar skynsemisfærslur eins og hinn ágæti einstaklingur "E" færir: "Þetta veiðimoment er orðið algerlega úrelt. Við þurfum engin dýr að drepa". Spyrjum jólasteikina hvort hún sé sammála.