1.8.2013 kl. 08:56

Hluthafar, hér er vinsamleg ábending

Hluthafar í Vinnslustöðinni og öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum sem fá greiddan út arð næstu vikur og mánuði. Það er rökrétt að samfélagsleg ábyrgð einstaklinga og fyrirtækja aukist í réttu hlutfalli við þá ráðstafanlegu auðlegð sem þeir hafa undir höndum. Mig langar því að benda ykkur vinsamlega á að nú er lag að láta eitthvað smáræði af hendi rakna til heilbrigðiskerfisins. Til dæmis til kaupa á lækningatækjum. Þetta mætti gera með formlegum hætti, svo sem með stofnun styrktarsjóðs þannig að hægt væri að benda á að þetta hefði verið gert. Þetta væri líklegt til að stuðla að friði og aukinni sátt í samfélaginu.

Athugasemdir

Hallgrímur Hrafn Gíslason

1.8.2013 kl. 09:35

Hluthafar greiða fjármagnstekjuskatt 20% sem gera 220 millur í tilfelli Vinslustöðvarinnar.

Hlutafélög sem eiga hlut eru væntanlega með kostnað á móti sem dregur úr skatti.

Ragnar Geir Brynjólfsson

1.8.2013 kl. 10:32

Takk fyrir innlitið og góðar ábendingar Hallgrímur.