18.10.2016 kl. 06:36
Unnið verður eftir sóknaráætlun í loftslagsmálum
Framsókn ætlar að vinna eftir sóknaráætlun í loftslagsmálum* sem er að fullu fjármögnuð til næstu þriggja ára í samræmi við skuldbindingar Íslands í Parísarsamkomulaginu. Áætlunin byggir á verkefnum sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í samgöngum, sjávarútvegi, landbúnaði og við landnotkun. Innviðum fyrir rafbíla verður komið upp, auknu fé verður varið í landgræðslu og til skógræktar, einnig verður gert átak til að draga úr matarsóun.
* Sjá 10. lið kosningastefnuskrárinnar.
* Sjá sóknaráætlunina hér.
Athugasemdir
Valdimar Samúelsson
18.10.2016 kl. 07:24
Verður þessi áættlun framfylgd með lögregluvaldi.?
Ragnar Geir Brynjólfsson
18.10.2016 kl. 17:31
Takk fyrir innlitið Valdimar. Nei það tel ég einkar ólíklegt með það í huga hve málefnið hefur mikinn meðbyr.