25.10.2016 kl. 18:08

Af hverju kýs ég Framsóknarflokkinn fremur en aðra flokka?

Fyrir mér er Framsóknarflokkurinn lausnamiðaður flokkur sem horfir á viðfangsefnin út frá þeirra eigin forsendum og leitar bestu lausna í samræmi við þær þannig að þær þjóni heildarhagsmunum sem best. Að leita lausna út frá forsendum viðfangsefnanna er betra en að en að notast við lausnir sem þjóna tiltekinni hugmyndafræði.

Þegar horft er til sögunnar þá má sjá að hugmyndafræðistefnur koma og fara og skilja eftir sig mis mikla slóð vandræða. Það að Framsóknarflokkurinn bindur sig ekki við hugmyndafræðistefnu gerir að verkum að hann fjarlægir sig ekki frá neinum þjóðfélagshóp og á sér því ekki hugmyndfræðilega andstæðinga aðra en þá sem hafna lýðræði og stjórnarskrá. 

Sá Framsóknarflokkur sem ég sé er flokkur sem reynir ekki að breyta þróuninni með því að aðlaga hana að hugmyndafræði heldur hlúir að þeim jákvæða vexti sem til staðar er í samfélaginu. Þetta hefur gert að verkum að Framsókn hefur orðið talsmaður lítilla og meðalstórra fyrirtækja og hefur horft til samvinnu fremur en samruna.

Þessi nálgun að viðfangsefnum er í eðli sínu hliðhollari valddreifingu og samvinnu fremur en miðstýringu og stjórnlyndi. Framsókn hefur í gegnum tíðina litið svo á að samspil höfuðborgar við öfluga landsbyggð þjóni heildarhagsmunum best. Flokkurinn hefur gætt hagsmuna dreifbýlisins, er að uppruna flokkur bænda en hefur alla burði til að geta sótt meira inn í þéttbýlið. 

Af þessum ástæðum tel ég að Framsóknarflokkurinn hafi náð að verða 100 ára og ég vona að hann eigi eftir að verða til um ókomna tíð. 

25.10.2016. Ragnar Geir Brynjólfsson.

Athugasemdir