31.12.2007 kl. 23:24
Óðurinn til lífsins og vináttunnar
Flestir þekkja hið geysivinsæla lag 'Wonderful world' sem Louis Armstrong gerði heimsfrægt. Hægt er að sjá óborganlegan og einstæðan flutning hans á því á eftirfarandi YouTube myndskeiði sem nú þegar hefur fengið yfir 3 milljónir heimsókna:
Texti þess er í stuttu máli óður til lífsins, vináttunnar og æskunnar og var hugsunin á bakvið hann sú að auka bjartsýni fólks í Bandaríkjunum árið 1967 þegar lagið var gefið út. Þetta var á tímum kynþáttatogstreitu og Víetnamstríðs. Lífsgleðin og vináttan getur sameinað alla, bæði unga og gamla, fólk af ólíkum þjóðum, litarhætti og trú, karla og konur. Í tilefni af því langaði mig að gera tilraun að texta við þetta lag sem gæti komist eitthvað nálægt því að ná þeim hughrifum sem enski textinn kemur svo vel til skila. Hvort það hefur tekist verða aðrir að dæma um. Ég lýk því þessari síðustu bloggfærslu ársins með því að birta textann hér fyrir neðan og þakka ykkur lesendur góðir samfylgdina á árinu. Megið þið njóta blessunar, lífsgleði og friðar á árinu sem nú gengur í garð.
Vinarþel
Ég sé laufguð tré - [og] rauðrósa beð,
í blóma þær - lífg' okkar geð.
[Já] ég heillatákn tel - okkar vinarþel.
Himinbláminn skær - og skýjabær
dagur mér kær - [og] nóttin svo vær.
[Já] ég heillatákn tel - okkar vinarþel.
Í litum regnboganna - mér birtist hljómur skýr
í andlitunum ljómar - þá vonarlogi nýr.
Vinir heilast hlýtt segja; blessun sé þín
úr augum þeirra - ánægjan skín.
Barnahlátur tær - [mér] hjarta er nær
blessun sá fær - er eyra þeim ljær.
[Já] ég heillatákn tel - okkar vinarþel.
(tónlist)
Í litum regnboganna - mér birtist hljómur skýr
í andlitunum ljómar - þá vonarlogi nýr.
Vinir heilast hlýtt segja; blessun sé þín
úr augum þeirra - ánægjan skín.
Barnahlátur tær - [mér] hjarta er nær
blessun sá fær - er eyra þeim ljær
[Já] ég heillatákn tel - okkar vinarþel.
Ath. [] merktan texta er hægt að fella niður ef það fer betur í söngnum.
Sjá: http://en.wikipedia.org/wiki/What_a_Wonderful_World
Athugasemdir
Eiríkur Harðarson
1.1.2008 kl. 03:10
Þó kynþáttatogstreitutímabilið og Víetnamstríðs lætin séu um garð gengin, þá stendur eftir helv..... Bush og Írakstímabilið. Það tel ég vera virkilega heimsyfirráðaeinstefnublindgötu, svo að ég vil meina að þessi tilraun þín til að sameina allt í einhverju "vinarþeli" fari mest megnis fyrir ofan garð og neðan.
Ragnar Geir Brynjólfsson
1.1.2008 kl. 13:45
Það má vera Eiríkur en ég er samt viss um að vináttan hefur einhvern tíma stöðvað stríð og vonandi á hún eftir að gera það í framtíðinni. 'Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur' kvað skáldið Jónas og víst er að fátt er skemmtilegra en að gleðjast í góðra vina hópi.
Vinátta og hlýjar tilfinningar til samferðafólksins eru eitt af því sem gefur lífinu einna mest gildi og ég er nokkuð viss um að hún eykur gleði manna og hamingju. Vináttutilfinningar til annarra eru því eftirsóknarverðar í sjálfum sér og það merkilega er að þær er ekki hægt að kaupa heldur aðeins rækta.