22.2.2008 kl. 15:47
Gamalt húsgangskvæði úr Flóanum
Tíkin hennar Leifu
tók hún frá mér margt
nýja skaflaskeifu
skinn - og vaðmál svart.
Tíkin sú var ekki ein
því Óðinn var með henni.
Át hún flot og feitt ket
feikilega sú lét
kapalinn og kaupskip
kálfa tólf og Þórólf,
Ingólfsfjall og allan Flóa
aftur lét hún kjaftinn mjóa
þó var hún ekki hálffull.
Brynjólfur Guðmundsson skráði 2005.
(„Kapall“ er í merkingunni „hestur“).
Athugasemdir
Jón Valur Jensson
27.2.2008 kl. 00:09
Hún hefur leynt á sér, tíkin sú arna. Þetta hefur þó ekki verið sú svæsna Pólitík? -- En hugsunin eða skáldlega flugið minnir á viðskipti Þórs við Elli kerlingu, Útgarða-Loka og Miðgarðsorm.
Ragnar Geir Brynjólfsson
27.2.2008 kl. 21:59
Takk fyrir innlitið Jón. Já, miðað við það að tíkin át Þórólf þá bendir það nú til að þetta hafi verið pólitíkin sjálf.
. En ég var einmitt líka að hugsa um Miðgarðsorm líka í þessu sambandi, þá ófreskju sem hringar sig um jörðinga og bítur í halann á sjálfri sér - eða var það ekk einhvern veginn þannig? Það að hún er í slagtogi við Óðin bendir til einhvers slíks félagsskapar.
Greta Björg Úlfsdóttir
23.2.2008 kl. 13:29
Gaman að þessu.
Ragnar Geir Brynjólfsson
24.2.2008 kl. 22:54
Takk fyrir innlitið Greta. Já, þetta er eitt af þessum gömlu minnum um ófreskjuna sem étur allt mögulegt og ómögulegt. Ótrúlegt hvað þessi minni eru lífseig og koma víða fram.
Óskráður
2.3.2008 kl. 16:07
Heill og sæll, Ragnar Geir og þökk fyrir allt gamalt og gott !
Tek undir, með þeim Gretu og Jóni Val. Vil samt bæta við; hlutlæg vísindi Flóamanna eru ekki síðri, svo sem uppfinningar þeirra bera vott um, t.d. Jóhanns heitins frænda þíns, og tengdaföður míns, í Helli, bera ljósan vitnisburð skarprar hugsunar, nýliðinnar aldar.
Með beztu kveðjum, sem fyrr / Óskar Helgi Helgason
Ragnar Geir Brynjólfsson
3.3.2008 kl. 21:22
Takk fyrir innlitið og góð orð Óskar. Bestu kveðjur, Ragnar.